Uppgjör fyrri árshelmings 2026
Stjórn og forstjóri Íveru ehf. samþykktu samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 á fundi sínum í dag, 15. september 2026. Árshlutareikningurinn inniheldur samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn er kannaður af endurskoðendum félagsins, KPMG ehf.
Helstu lykiltölur
Egill Lúðvíksson, forstjóri:
„Niðurstöður fyrri árshelmings eru jákvæðar hjá Íveru og sýna öflugt samspil ytri vaxtar ásamt kjölfestu eldri eigna. Þróun eignasafnsins er í takt við markmið félagsins og er einn helsti drifkraftur hækkandi EBITDA-framlegðar og skilvirkari reksturs.
Kröftugur vöxtur eignasafnsins setur um leið svip sinn á nýtingu þess þar sem vöxtur eignasafnsins er fyrst og fremst í formi nýrra eigna sem eru afhentar tómar. Heildarvannýting fyrstu sex mánuði ársins var 8,2%, samanborið við 3,3% á sama tímabili í fyrra, en vannýting án vaxtarverkefna nam 4,3%. Aukninguna má því að hluta rekja til nýrra eigna og framkvæmda sem er eðlilegur og tímabundinn fylgifiskur þess að stækka eignasafnið. Þá hefur markaðsumhverfið nýverið litast af hægari fólksfjölgun, veikari vinnumarkaði og sívaxandi framboði á fasteignamarkaði, sem hefur dregið úr eftirspurn og aukið framboð á leigumarkaði. Því hefur vannýting án tillits til vaxtar félagsins einnig aukist.
Ívera leggur mikla áherslu á að vera leiðandi í þjónustu á leigumarkaði og vinnum við markvisst að því að halda uppi faglegu þjónustustigi og gæðum eigna félagsins. Því er afar ánægjulegt að sjá þær áherslur endurspeglast í afstöðu leigutaka okkar í árlegri þjónustukönnun Íveru. Meðal niðurstaðna var að 86% leigutaka Íveru telja sig búa við húsnæðisöryggi og 92% eru ánægðir með samskipti sín við félagið. Fagleg og traust þjónusta er kjarninn í starfsemi Íveru og því er þessi niðurstaða mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut.
Ívera mun áfram þróa og stækka eignasafn félagsins í átt að 3.000 íbúðum og mæta þannig fyrirsjáanlegri langtímaþörf fyrir gæða íbúðarhúsnæði til traustrar langtímaleigu. Félagið er vel í stakk búið til að fylgja vaxtaráformunum eftir með styrkri fjármagnsskipan með 52,7% eiginfjárhlutfalli í lok júní. Þá hefur skuldabréfaútgáfu Íveru verið tekið afar vel af markaðsaðilum, þar sem kjörin endurspegla hóflega skuldsetningu félagsins og kjölfestu íbúðarhúsnæðis sem eignaflokks.“
Starfsemi tímabilsins
Á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 gekk félagið frá kaupsamningum um kaup á 192 nýjum íbúðum sem verða afhentar á næstu mánuðum og árum, samtals hefur félagið þannig tryggt sér 477 nýjar íbúðir til útleigu.
Í febrúar 2026 var gengið frá kaupum á Hakabryggju ehf., sem á 5.526 fermetra lóð á Þórðarhöfða í Reykjavík. Áform félagsins gera ráð fyrir uppbyggingu á um 127 íbúðum á lóðinni. Í júní 2026 gekk félagið frá kaupum á Íveru Eyravega ehf., sem á fjölbýlishús við Eyraveg 28-30 á Selfossi með samtals 53 íbúðum. Félögin eru hluti af samstæðu Íveru við afhendingu.
Í júní 2026 gaf félagið út tvo nýja verðtryggða skuldabréfaflokka, IVERA090631 og IVERA090637, undir 25 ma.kr. útgáfuramma sínum. Um er að ræða verðtryggð vaxtagreiðslubréf, annars vegar fimm ára skuldabréfaflokk með lokagjalddaga árið 2031 og hins vegar ellefu ára skuldabréfaflokk með lokagjalddaga árið 2037. Samhliða útgáfunni fór fram skiptiútboð á skuldabréfaflokknum HEIM070826, sem var á gjalddaga í ágúst 2026. Með útgáfunni hélt félagið áfram uppbyggingu markaðsfjármögnunar sinnar og styrkti enn frekar fjármögnunargrundvöll sinn til framtíðar.