Í kjölfar birtingar á sex mánaða uppgjöri Íslandsbanka þann 29. ágúst síðastliðinn, öðluðust starfsmenn bankans rétt til að innleysa kaupréttarsamninga sem gerðir voru þann 6. ágúst 2025. Á grundvelli þessara samninga seldi Íslandsbanki, og starfsmenn bankans keyptu 6.397.210 hluti á genginu 126,4 krónur á hvern hlut, eða samtals að fjárhæð 808.607.438 krónur. Í viðskiptunum voru seld eigin bréf bankans sem hann hafði öðlast á grundvelli undangenginna endurkaupa.
Samhliða voru gerðir 50 nýir kaupréttarsamningar við jafnmargt starfsfólk fyrir 518.650 hluti. Eru þessir kaupréttarsamningar gerðir á grundvelli kaupréttaráætlunar bankans, en upphaflega voru gerðir kaupréttarsamningar á grundvelli hennar þann 6. ágúst 2025. Á grundvelli þeirra 50 samninga sem nú hafa verið gerðir öðlast þeir starfsmenn rétt til að kaupa hluti í Íslandsbanka fyrir allt að 1.500.000 krónur einu sinni á ári út líftíma kaupréttaráætlunarinnar, eftir birtingu sex mánaða uppgjör bankans árin 2027, 2028, 2029 og 2030. Kaupverð hlutanna er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf bankans síðustu 10 viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem var 30. júlí síðastliðinn, er 144,6 krónur á hvern hlut.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is