Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.960 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 28 voru samtals 400 m.kr. á 0,10% álagi á 1 mánaða REIBOR. Heildartilboð voru 640 m.kr. á álagi á bilinu 0,09% til 0,15%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 33.380 m.kr. til eigin nota.
Öllum tilboðum var hafnað í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32. Heildartilboð voru 1.320 m.kr. á bilinu 3,60% til 3,64%.
Uppgjör viðskipta fer fram þann 31. ágúst 2026.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is