Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 6.060 m.kr.
Öll tilboð voru samþykkt í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 28, samtals 360 m.kr. á 0,10% álagi á 1 mánaða REIBOR. Álag tilboða var á bilinu 0,09% til 0,10%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 33.020 m.kr. til eigin nota.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,51%. Heildartilboð voru 5.700 m.kr. á bilinu 3,49% til 3,60%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 15.620 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Uppgjör viðskipta fer fram þann 12. október 2026.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is