Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir annars ársfjórðung 2026 eftir lokun markaða þann 29. júlí 2026. Rafrænn afkomufundur verður haldinn fimmtudaginn 30. júlí klukkan 8.30.
Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund fimmtudaginn 30. júlí kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á ársfjórðungnum. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að bera fram skriflegar spurningar, fer fram hér. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni færðu afhent símanúmer og auðkenni fyrir fundinn.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is