Ísfélag hf. („Ísfélag“ eða „félagið“) tilkynnir að eignarhlutur félagsins í Austur Holding AS („Austur“) verði 43,4% í kjölfar uppgjörs á fjármögnun félagsins til Austur. Eignarhlutur Ísfélags í Austur var áður 29,3%. Í júní 2025 tilkynnti Ísfélag um aðkomu félagsins að fjármögnun Austur vegna þátttöku Austur í hlutafjárhækkun Kaldvik AS. Fjármögnun Ísfélags nam NOK 341 milljón, eða um EUR 29,7 milljónum, og samanstóð af eiginfjárframlagi og breytanlegum hluthafalánum. Að loknu uppgjöri fjármögnunarinnar verður eignarhlutur Ísfélags í Austur 43,4% og eignarhlutur Heimstø AS 56,6%. Austur fer með 60,021% eignarhlut í Kaldvik AS.