Icelandair flutti 599 þúsund farþega í júlí 2026 samanborið við 611 þúsund í sama mánuði árið áður, sem nemur 2% samdrætti milli ára. Þar af voru 42% á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 35% voru tengifarþegar og 4% ferðuðust innanlands.
Eftirspurn á lykilmörkuðum félagsins var áfram sterk í mánuðinum. Í takt við núverandi áherslur félagsins fjölgaði farþegum til Íslands um 7% á milli ára, farþegum frá Íslandi um 11% og þá jókst fjöldi farþega í innanlandsflugi um 8%. Á sama tíma dróst fjöldi tengifarþega saman um 16%.
Tekjur á hvern sætiskílómetra jukust um 12% á milli ára og voru 11,32 sent en þann árangur má rekja til áherslu félagsins á arðbærustu markaðina á hverjum tíma og markvissrar leiðakerfisstýringar. Sætanýting var 88,8% samanborið við 88,2% í júlí 2025 og stundvísi var 77,1%. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 8% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 9%.
Þá dróst kolefnislosun á hvern tonnkílómetra (OTK) saman um 3% á milli ára, sem endurspeglar ávinning af flotaendurnýjun félagsins, aukna hagkvæmni í rekstri og góða nýtingu flugflotans.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Júlí er einn annasamasti mánuður ársins hjá Icelandair. Við fluttum 599 þúsund farþega og náðum 88,8% sætanýtingu á sama tíma og við drógum framboð saman um 5% á milli ára. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá áframhaldandi vöxt á þeim lykilmörkuðum sem við leggjum áherslu á, sem undirstrikar sterka eftirspurn eftir ferðalögum til, frá og innan Íslands sem hafði jákvæð áhrif á tekjumyndun.“
Nánari upplýsingar
Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta. Netfang: asdis@icelandair.is