HS Veitur hf. tilkynnir að skuldabréfaflokkurinn HSVE 45 1218 hafi verið tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 8. október 2026. Skuldabréfin voru seld í desember 2025 og er skráningarferli flokksins nú lokið að fenginni staðfestingu útboðsgagna frá Seðlabanka Íslands. Flokkurinn er að heildarnafnverði 5.000.000.000 kr. og ber 3,5% vexti með lokagjalddaga 18. desember 2045.
Kvika banki hf. hafði umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Nánari upplýsingar veita:
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
Framkvæmdastjóri fjármála
annab@hsveitur.is
s. 898 6252