Í viku 37 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 939.700 eigin hluti að kaupverði 32.134.890 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 7.9.2026 | 09:44 | 205.000 | 34,50 | 7.072.500 |
| 8.9.2026 | 10:00 | 210.000 | 34,50 | 7.245.000 |
| 9.9.2026 | 14:43 | 210.000 | 34,00 | 7.140.000 |
| 10.9.2026 | 09:55 | 240.000 | 34,00 | 8.160.000 |
| 11.9.2026 | 10:04 | 74.700 | 33,70 | 2.517.390 |
| Samtals | 939.700 | 32.134.890 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.
Heimar áttu 28.875.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 29.814.700 hluti, eða um 1,52% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 1.069.260.790 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is