Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) mun birta samþykkt uppgjör fyrir tímabilið 1.1.- 30.6.2026, eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. ágúst 2026.
Af því tilefni bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@heimar.is
Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://www.heimar.is/kynningarfundir/afkoma-fyrstu-6-manada-2026/
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, sími: 821 0001.