Í viku 37 keyptu Hagar hf. 909.074 eigin hluti að kaupverði kr. 110.288.806 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 7.9.2026 | 09:52 | 222.000 | 122,000 | 27.084.000 | 23.524.869 |
| 8.9.2026 | 14:28 | 222.000 | 122,000 | 27.084.000 | 23.746.869 |
| 9.9.2026 | 11:31 | 222.000 | 121,000 | 26.862.000 | 23.968.869 |
| 10.9.2026 | 12:53 | 222.000 | 120,500 | 26.751.000 | 24.190.869 |
| 11.9.2026 | 14:50 | 21.074 | 119,000 | 2.507.806 | 24.211.943 |
| 909.074 | 121,320 | 110.288.806 | 24.211.943 |
| Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 21. ágúst 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 20. ágúst 2026. |
| Hagar hafa keypt samtals 2.907.074 hluti í félaginu sem samsvarar 3,25% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 354.155.806 kr. sem samsvarar 70,83% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 2,19% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.106.428.863. |
| Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna, með þeim fyrirvara að ekki verði keyptir fleiri en 89.338.017 hlutir. |
| Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. |
| Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is |
