Í viku 32 keyptu Hagar hf. 392.000 eigin hluti að kaupverði kr. 47.040.000 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 5.8.2026 | 09:36 | 196.000 | 120,000 | 23.520.000 | 21.091.614 |
| 7.8.2026 | 13:22 | 196.000 | 120,000 | 23.520.000 | 21.287.614 |
| 392.000 | 120,000 | 47.040.000 | 21.287.614 |
| Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 2. júlí 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 1. júlí 2026. |
| Hagar hafa keypt samtals 4.116.000 hluti í félaginu sem samsvarar 4,43% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 497.938.000 kr. sem samsvarar 99,59% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,92% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.106.428.863. |
| Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna, með þeim fyrirvara að ekki verði keyptir fleiri en 92.875.852 hlutir. |
| Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. |
| Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is |
