Hagar hf. luku í dag, 27. ágúst 2026, útboði skuldabréfa í flokknum HAGA 130629 1.
HAGA 130629 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda 1 mánaðar REIBOR að viðbættu 1,00% vaxtaálagi, með lokagjalddaga þann 13. júní 2029. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 1.320 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í HAGA 130629 1 námu samtals 2.920 m.kr. að nafnvirði, þar sem álag ofan á 1M REIBOR var á bilinu 0,80-1,10%. Tilboðum að fjárhæð 1.740 m.kr. að nafnvirði var tekið á 0,95% álagi.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að endurkaup á HAGA 1209206 1 nema 580 m.kr. að nafnvirði.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna fimmtudaginn 3. september nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefa-og-vixlautgafa/
Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita:
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., netfang: arnar.saemundsson@fossar.is
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., netfang asgrimur@fossar.is
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, geg@hagar.is