Hafnarfjarðarkaupstaður efnir til útboðs í skuldabréfaflokknum HFJ 50 1 miðvikudaginn 26. ágúst 2026.
Heimild til lántöku á árinu er 8.350 m.kr. Þetta er þriðja útboð ársins.
Skuldabréfaflokkurinn HFJ 50 1 ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga árið 2050. Áður hafa verið gefin út 6.100 m.kr. að nafnvirði í flokknum.
Fyrirkomulag útboðsins verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Hafnarfjarðarkaupstaður áskilur sér rétt til að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Áætlaður uppgjörsdagur er 3. september 2026.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabréfamidlun@arionbanki.is fyrir kl.16:00 þann 26. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
Sviðstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðarkaupstaðar
helga@hafnarfjordur.is