Hafnarfjarðarkaupstaður hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum HFJ 50 1
Heildartilboð í HFJ 50 1 voru samtals 2.550 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,91%-4,10%. Ákveðið var að taka tilboðum samtals að nafnvirði 1.450 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,00%.
Þetta var sjötta útboðið í skuldabréfaflokknum og er heildarstærð flokksins 7.550 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðarkaupstaðar
netfang: helga@hafnarfjordur.is