Uppfærð útgáfuáætlun Hafnarfjarðarbæjar á árinu 2026
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti fjárhagsáætlun ársins 2026 og 2027-2029 á fundi sínum 3. desember 2025 og lántökuáætlun fyrir árið 2026 á sama tíma. Bæjarráð samþykki á fundum sínum þann 25. júní 2026 og 9. júlí 2026, í umboði bæjarstjórnar, að hækka lántökuáætlun ársins samtals um 3.700 m.kr. annars vegar vegna aukinna framkvæmda við Hamranesskóla á árinu (700 m.kr.) og miklum framkvæmdum í tengslum við uppbyggingu í nýjum hverfum (3.000 m.kr.). Lántökuáætlun ársins er því 8.350 m.kr.
Gert er ráð fyrir að lántaka ársins verði annars vegar í formi sölu skuldabréfa úr skuldabréfaflokknum HFJ 50 1, sem er verðtryggður skuldabréfaflokkur, með föstum 3,75% vöxtum og með loka gjalddaga 22. september 2050 eða með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. hins vegar með styttri lántöku til allt að 7 ára.
Skuldabréfaútboð Hafnarfjarðarbæjar á árinu eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:
Útgáfuáætlun er lögð fram til að auka fyrirsjáanleika á markaði en Hafnarfjarðarbær áskilur sér rétt til að bregða út af þessari áætlun, fella niður útboð og/eða bæta við útboðsdögum. Útgáfuáætlunin nær frá janúar til desember 2026.
Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi að lágmarki einum degi fyrir útboð.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs
helga@hafnarfjordur.is