Bæjarráð Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkti í dag, í umboði bæjarstjórnar, að hækka lántökuheimild A-hluta á árinu 2026 um 3.000 m.kr.
Lántökuheimild A-hluta á árinu 2026 er 4.500 m.kr. skv. fjárhagsáætlun ársins en verður 7.500 m.kr. eftir hækkunina.
Gert er ráð fyrir að viðbótar lántaka verði til allt að 7 ára til að mæta miklum framkvæmdum hjá bænum á sama tíma og hægst hefur á framkvæmdum hjá verktökum og öðrum húsbyggjendum.
Bæjarráð hefur einnig samþykkt að veita sviðsstjóra fjármálasviðs heimild til að óska eftir tilboðum í þessa viðbótar lántöku. Tilboð og tillaga að lántöku verður lögð fyrir bæjarráð og fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðarkaupstaðar
netfang: helga@hafnarfjordur.is