Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til útboðs á nýjum skuldabréfaflokki miðvikudaginn 14. október næstkomandi sem gefinn er út undir 15.000.000.000 kr. útgáfuramma bankans.
Boðin verða til sölu skuldabréf í flokki FOS 28 1, sem er almennur skuldabréfaflokkur og ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk álags. Flokkurinn er með lokagjalddaga 27. október 2028 og greiðir mánaðarlegar vaxtagreiðslur.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins FOS 281026 eiga þess kost að selja bréf í flokknum á pargenginu 100,00, gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði.
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Bankinn áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Markaðsviðskipti Fossa Fjárfestingarbanka hf. hafa umsjón með útboðinu og tilboðsfjárhæðum auk vaxtaálags skal skilað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi, miðvikudaginn 14. október á netfangið utbod@fossar.is.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskiptanna er 28. október 2026.
Sótt verður um töku skuldabréfanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsing og endanlegir skilmálar er varða útgáfu flokksins verða birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar.
Nánari upplýsingar veita:
Arnar Friðriksson
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 843-4023
Netfang: arnar.fridriksson@fossar.is
Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 842-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
