Í 34. viku 2026 keypti Festi alls 225.000 eigin hluti fyrir 69.150.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | ||||||
| 34 | 18.8.2026 | 11:33:40 | 75.000 | 307,0 | 23.025.000 | ||||||
| 34 | 19.8.2026 | 11:12:16 | 75.000 | 307,5 | 23.062.500 | ||||||
| 34 | 21.8.2026 | 10:30:49 | 75.000 | 307,5 | 23.062.500 | ||||||
| 225.000 | 69.150.000 | ||||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 5.168.864 hluti eða 1,65% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.715.000 eigin hluti fyrir 533.220.000 kr. og á í dag 5.393.864 hluti sem samsvarar 1,73% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).