Í 40. viku 2026 keypti Festi alls 210.555 eigin hluti fyrir 62.690.416 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | ||||||
| 40 | 28.9.2026 | 11:03:11 | 52.531 | 300,0 | 15.759.300 | ||||||
| 40 | 28.9.2026 | 13:03:48 | 65 | 300,0 | 19.500 | ||||||
| 40 | 28.9.2026 | 13:59:20 | 21.935 | 300,0 | 6.580.500 | ||||||
| 40 | 29.9.2026 | 14:52:05 | 75.000 | 296,5 | 22.237.500 | ||||||
| 40 | 30.9.2026 | 10:35:11 | 61.024 | 296,5 | 18.093.616 | ||||||
| 210.555 | 62.690.416 | ||||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið.
Fyrir kaupin þá átti Festi 6.468.309 hluti eða 2,07% af hlutafé félagsins. Festi keypti samtals 3.000.000 eigin hluti fyrir 921.620.519 kr. og á í dag 6.678.864 hluti sem samsvarar 2,14% af hlutafé félagsins.
Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað var að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).