Í 30. viku 2026 keypti Festi alls 225.000 eigin hluti fyrir 70.462.500 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
| 30 | 20.7.2026 | 14:29:00 | 75.000 | 313,0 | 23.475.000 |
| 30 | 21.7.2026 | 14:24:35 | 75.000 | 313,5 | 23.512.500 |
| 30 | 24.7.2026 | 10:55:22 | 75.000 | 313,0 | 23.475.000 |
| 225.000 | 70.462.500 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 4.303.864 hluti eða 1,38% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 850.000 eigin hluti fyrir 266.742.500 kr. og á í dag 4.528.864 hluti sem samsvarar 1,45% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).
