Í 32. viku 2026 keypti Festi alls 265.000 eigin hluti fyrir 81.677.500 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | ||||||
| 32 | 4.8.2026 | 10:49:24 | 40.000 | 308,5 | 12.340.000 | ||||||
| 32 | 5.8.2026 | 11:02:15 | 59.595 | 308,5 | 18.385.058 | ||||||
| 32 | 5.8.2026 | 11:11:44 | 15.405 | 308,5 | 4.752.443 | ||||||
| 32 | 6.8.2026 | 12:01:14 | 75.000 | 308,5 | 23.137.500 | ||||||
| 32 | 7.8.2026 | 11:20:19 | 75.000 | 307,5 | 23.062.500 | ||||||
| 265.000 | 81.677.500 | ||||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 4.678.864 hluti eða 1,50% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.265.000 eigin hluti fyrir 394.882.500 kr. og á í dag 4.943.864 hluti sem samsvarar 1,58% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).
