Í 39. viku 2026 keypti Festi alls 300.000 eigin hluti fyrir 90.487.500 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | |||||
| 39 | 21.9.2026 | 14:20:21 | 75.000 | 304,0 | 22.800.000 | |||||
| 39 | 23.9.2026 | 11:23:02 | 75.000 | 302,0 | 22.650.000 | |||||
| 39 | 24.9.2026 | 13:31:26 | 75.000 | 300,0 | 22.500.000 | |||||
| 39 | 25.9.2026 | 10:53:52 | 75.000 | 300,5 | 22.537.500 | |||||
| 300.000 | 90.487.500 | |||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 6.168.309 hluti eða 1,97% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 2.789.445 eigin hluti fyrir 858.930.103 kr. og á í dag 6.468.309 hluti sem samsvarar 2,07% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).