Í 28. viku 2026 keypti Festi alls 200.000 eigin hluti fyrir 62.250.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
| 28 | 7.7.2026 | 11:15:30 | 50.000 | 315,0 | 15.750.000 |
| 28 | 8.7.2026 | 11:05:57 | 75.000 | 308,0 | 23.100.000 |
| 28 | 10.7.2026 | 11:48:02 | 75.000 | 312,0 | 23.400.000 |
| 200.000 | 62.250.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 3.793.864 hluti eða 1,21% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 315.000 eigin hluti fyrir 98.570.000 kr. og á í dag 3.993.864 hluti sem samsvarar 1,28% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).
