Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokkunum EIK 150531, EIK 120266 og EIK 29 1.
Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 3.050 m.kr. í EIK 150531, 1.780 m.kr. í EIK 120266 og 1.320 m.kr. í EIK 29 1. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.020 m.kr. í EIK 150531 á ávöxtunarkröfunni 4,55%, tilboðum að nafnvirði 1.500 m.kr. í EIK 120266 á ávöxtunarkröfunni 4,07% og tilboðum að nafnvirði 480 m.kr. í EIK 29 1 á genginu 98,7456.
Niðurstaða útboðs:
| Flokkur | EIK 29 1 | EIK 150531 | EIK 120266 |
| Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur | 17.9.2026 | 17.9.2026 | 17.9.2026 |
| Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) | 480 | 1.020 | 1.500 |
| Samþykkt (ávöxtunarkrafa) | 4,55% | 4,07% | |
| Fjöldi innsendra tilboða | 6 | 12 | 8 |
| Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) | 1.320 | 3.050 | 1.780 |
| Fjöldi samþykktra tilboða | 6 | 6 | 7 |
| Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa) | 4,59% | 4,02% | |
| Boðhlutfall | 2,75 | 2,99 | 1,19 |
Þetta var þriðja útboðið í flokknum EIK 150531 og er heildarstæð flokksins 7.000 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
Þetta var fjórða útboðið í EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 5.800 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
Þetta var þriðja útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 29 1 og er heildarstærð flokksins 4.560 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
EIK 150531 og EIK 120266 eru verðtryggð skuldabréf tryggð með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. EIK 29 1 er óverðtryggt og óveðtryggt skuldabréf.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980