Brim hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09
Brim hf. („BRIM“) hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09. Heildareftirspurn í skuldabréfaflokkinn nam kr. 12.000.000.000. Seld voru skuldabréf á pari að nafnverði kr. 9.000.000.000.
Skuldabréfaflokkurinn BRIM 29 09 er með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga og ber fljótandi vexti tengdum 3 mánaða REIBOR-vöxtum að viðbættu 1,30% vaxtaálagi. Greiðslur vaxta eru á þriggja mánaða fresti, fyrst þann 22. desember 2026. Ein greiðsla höfuðstóls verður á lokagjalddaga. Skuldabréfin eru gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum.
Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 22. september nk. og fyrirhugað er að skrá skuldabréfaflokkinn á Aðalmarkað Nasdaq Iceland eigi síðar en 6 mánuðum frá útgáfudegi. Nasdaq Iceland mun tilkynna töku til viðskipta með a.m.k. eins dags fyrirvara.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu, og útgáfu skuldabréfanna og fyrirhugaða töku þeirra til viðskipta á skipulegan verðbréfamarkað.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d - liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is
Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs., ingajona@brim.is
