Brim hf. - Fyrirvarar uppfylltir vegna sölu á Polar Seafood Denmark
Brim hf. samdi um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD), en S-13 Holding ApS dótturfélag Brim hefur haldið á hlut Brims í PSD í Danmörku, eins og nánar var tilkynnt um 31. maí 2026. Samkomulagið var gert með tveimur fyrirvörum, þe. fyrirvara um fjármögnun og fyrirvara um samþykki opinberra eftirlitsaðila
Fyrirvara um fjármögnun var uppfylltur 12. júní sl. og nú liggja fyrir samþykki bæði danska og grænlenska samskeppniseftirlitsins að þau aðhafist ekki frekar vegna þessara viðskipta. Enginn fyrirvari stendur því eftir og unnið að frágangi viðskipta.