Bera hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, BERA270303 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 8,50% flötum vöxtum.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudaginn 31. ágúst 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag viðskipta með eins dags fyrirvara.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu, útgáfu og uppgjöri víxlanna.
Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d - liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veitir:
Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri, oskar.ingi.magnusson@berahf.is
