Bera hf. mun birta árshlutauppgjör félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2026 til 31. ágúst 2026, eftir lokun markaða fimmtudaginn 8. október 2026.
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 8. október 2026, klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Beru að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt.