Ásar hf. telja rétt að upplýsa að Símanum ehf. hefur borist andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins vegna rannsóknar stofnunarinnar á sölu félagsins (þá Símans hf.) á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu í gegnum Heimilispakkann.
Frummat Samkeppniseftirlitsins sem birtist í andmælaskjalinu snýr að því að tímabundin tilboð á Heimilispakkanum hafi falið í sér svonefnda skaðlega undirverðlagningu í andstöðu við 11. gr. samkeppnislaga og tiltekin skilyrði ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015.
Málið tekur til tímabilsins 2019 - 2021 og snýr þannig að atvikum sem áttu sér stað fyrir fimm til sjö árum síðan. Þá hafa skilyrði ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 verið felld úr gildi af Landsrétti.
Andmælaskjalið felur ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun heldur er liður í meðferð málsins og gefur félaginu kost á að koma á framfæri skýringum, athugasemdum og gögnum áður en ákvörðun er tekin.
Félagið mun eðli málsins samkvæmt nýta andmælarétt sinn og taka til fullra varna í málinu. Upplýst verður um framgang málsins eftir því sem tilefni er til, lögum samkvæmt.
