Í 39. viku 2026 keypti Ásar hf. 6.850.000 eigin hluti að kaupverði 76.482.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 21.9.2026 | 11:44 | 1.250.000 | 10,85 | 13.562.500 | 109.168.958 |
| 22.9.2026 | 11:16 | 1.300.000 | 10,90 | 14.170.000 | 110.468.958 |
| 23.9.2026 | 09:50 | 1.500.000 | 11,55 | 17.325.000 | 111.968.958 |
| 24.9.2026 | 10:42 | 1.500.000 | 11,20 | 16.800.000 | 113.468.958 |
| 25.9.2026 | 10:01 | 1.300.000 | 11,25 | 14.625.000 | 114.768.958 |
| 6.850.000 | 76.482.500 | 114.768.958 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Ása hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 17. september 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 399.712.500 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.
Ásar hf. átti 107.918.958 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 114.768.958 eða sem nemur 4,78% af útgefnum hlutum í félaginu.
Ásar hf. hefur keypt samtals 9.150.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,38% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 101.602.500 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.