Vísað er til tilkynningar Ása hf. frá 24. ágúst 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að fella niður gildandi endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 24. ágúst 2026 og hefja samhliða nýja endurkaupaáætlun á grundvelli sömu heimildar og áður, með þeim skilmálum sem greinir hér að neðan. Tilgangur nýju áætlunarinnar er að breyta viðmiði fyrir hámark daglegra endurkaupa, þannig að kaup hvers dags geti numið allt að 25% af meðaltali daglegrar veltu með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands síðustu 20 viðskiptadaga á undan kaupdegi.
Á aðalfundi Ása hf. (þá Símans hf.) sem haldinn var þann 12. mars 2026 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 240.000.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Á grundvelli þeirrar heimildar ákvað stjórn félagsins þann 24. ágúst 2026 að koma á endurkaupaáætlun um kaup á eigin hlutum fyrir allt að 500 milljónum króna að kaupverði.
Á tímabilinu frá 24. ágúst 2026 til og með 16. september 2026 keypti félagið samtals 8.500.000 eigin hluti á grundvelli þeirrar endurkaupaáætlunar sem felld er niður með þessari tilkynningu og nemur heildarkaupverð þeirra 100.287.500kr.
Samhliða hefur stjórn félagsins ákveðið að hefja nýja endurkaupaáætlun á grundvelli sömu heimildar aðalfundar.
Endurkaup samkvæmt nýju áætluninni munu nema að hámarki 399.712.500 kr. að kaupverði. Umfang nýju áætlunarinnar tekur mið af þeim endurkaupum sem þegar hafa farið fram og felur ákvörðunin því ekki í sér aukningu á áður tilkynntu heildarumfangi endurkaupanna. Arion banki hf. mun áfram hafa umsjón með framkvæmd áætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.
Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers viðskiptadags verða að hámarki 25% af meðaltali daglegrar veltu með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands síðustu 20 viðskiptadaga á undan kaupdegi. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Kaup samkvæmt nýju endurkaupaáætluninni hefjast fimmtudaginn 17. september 2026. Endurkaupaáætlunin er í gildi þar til endurkaupum að kaupverði 500.000.000 kr. er lokið, en þó aldrei lengur en í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins þann 12. mars 2026 og aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027.
Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.
