Mánudaginn 5. október 2026 keyptu Ásar hf. 1.400.000 eigin hluti samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 17. september 2026. Með kaupunum náði hlutfall eigin bréfa Ása hf. 5% af heildarfjölda hluta.
Ásar hf. áttu 118.668.958 eigin hluti fyrir viðskiptin. Að þeim loknum á félagið 120.068.958 eigin hluti, sem nemur 5,00% af útgefnum hlutum í félaginu.
Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.
