Ásar hf. - Ásar og Sýn slíta viðræðum um kaup Ása á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar
Ásar hf. (þá Síminn) tilkynnti 12. mars 2026 að félagið og Sýn hf. (Sýn) hefðu komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Um var að ræða vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal.
Í tilkynningunni kom fram að viðskiptin væri háð niðurstöðum áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja aðila og samþykki viðeigandi eftirlitsaðila.
Eftir viðræður aðila í kjölfar áreiðanleikakönnunar er ljóst að aðilar munu ekki ná saman um viðskiptin. Því hefur verið ákveðið að falla frá viðskiptunum.
Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása hf. (maria@asar.is)
Þessi tilkynning er birt af Ásum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi viðræður um möguleg kaup á vef- og útvarpsmiðum Sýnar hf. sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Ása hf., í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.