Þann 19. desember 2025 var tilkynnt að Ásar hf. (þá Síminn hf.) hefðu skrifað undir samning um kaup á öllu hlutafé í Opnum kerfum hf. (OK) og Öryggismiðstöð Íslands hf. (ÖMÍ).
Ásar skiluðu inn samrunatilkynningu vegna kaupa á ÖMÍ þann 24. apríl 2026 og er lokafrestur til að ljúka rannsókn málsins 9. október 2026. Samrunatilkynningu vegna kaupa á OK var skilað inn þann 26. maí 2026 og er lokafrestur til að ljúka rannsókn málsins 4. nóvember nk.
Í dag barst Ásum hf. andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna á félögunum tveimur. Er það frummat Samkeppniseftirlitsins að íthlutun vegna kaupanna sé nauðsynleg.
Andmælaskjalið felur ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun heldur er það liður í meðferð málsins og gefur félaginu kost á að koma á framfæri skýringum, athugasemdum og gögnum áður en ákvörðun er tekin. Endanleg afstaða til kaupanna liggur því ekki fyrir.
Frestur Ása hf. til að skila athugasemdum er 25. september nk. Félagið mun greina frá framvindu málsins eftir því sem tilefni er til, lögum samkvæmt.