Rarik samstæðan skilaði 1.225 m.kr. hagnaði á fyrri hluta ársins 2026, samanborið við 1.494 m.kr. á sama tímabili árið áður. Rekstrartekjur jukust um 2,9% og námu 14.507 m.kr. EBITDA nam 4.590 m.kr., samanborið við 4.834 m.kr. árið áður, og rekstrarhagnaður (EBIT) nam 2.550 m.kr., samanborið við 2.937 m.kr.
Veruleg bæting varð í rekstri móðurfélagsins á tímabilinu. Lakari afkoma Orkusölunnar, meðal annars vegna krefjandi aðstæðna á raforkumarkaði og áhrifa íþyngjandi orkukaupasamnings, hafði hins vegar áhrif á afkomu samstæðunnar.
Veruleg bæting í rekstri móðurfélagsins
Rekstrartekjur móðurfélagsins námu 9.958 m.kr. og jukust um 5,4% frá fyrra ári. Rekstrargjöld án afskrifta lækkuðu um 2,1% og námu 5.710 m.kr. Tekjuaukningin skýrist einkum af hærri tekjum af dreifingu raforku og aukinni sölu á ótryggri orku og heitu vatni. Á sama tíma lækkaði bæði orkukostnaður og annar rekstrarkostnaður.
EBITDA móðurfélagsins nam 4.248 m.kr. og jókst um 17,4% milli ára. EBITDA-hlutfall hækkaði úr 38,3% í 42,7%. Hagnaður fyrir áhrif dótturfélaga nam 1.388 m.kr., samanborið við 889 m.kr. árið áður, og jókst um 56%.
Krefjandi markaðsaðstæður hafa áhrif á Orkusöluna
Orkusalan skilaði 110 m.kr. hagnaði eftir skatta á tímabilinu, afkoman var þó talsvert lakari en á sama tímabili fyrra árs. EBITDA nam 322 m.kr., samanborið við 1.196 m.kr. árið áður.
Þróunin skýrist einkum af krefjandi markaðsaðstæðum og áhrifum íþyngjandi orkukaupasamnings vegna ársins 2026. Nánar er fjallað um samninginn í skýringum með árshlutareikningnum.
Sterk fjárhagsstaða styður umfangsmikla uppbyggingu
Fjárhagsstaða Rarik samstæðunnar er áfram mjög sterk. Handbært fé frá rekstri nam 3.970 m.kr., samanborið við 3.694 m.kr. á sama tímabili árið áður. Heildareignir samstæðunnar námu 113.959 m.kr. í lok júní og eigið fé 68.417 m.kr. Eiginfjárhlutfall var 60,0%.
Fjárfestingar samstæðunnar námu 3.435 m.kr. á fyrri hluta ársins, þar af námu fjárfestingar í orkudreifingu 3.334 m.kr. Fjárfestingarnar beinast að áframhaldandi endurnýjun og styrkingu dreifikerfisins, aukinni afhendingargetu og bættu afhendingaröryggi. Uppbyggingin er jafnframt mikilvæg forsenda orkuskipta, nýrra tenginga og frekari atvinnuuppbyggingar víða á landsbyggðinni.
Fjárfest í öflugra og sveigjanlegra dreifikerfi
Á fyrri hluta ársins var meðal annars unnið að uppbyggingu nýs spennahúss á Flúðum sem mun styðja við aukna afhendingargeta á svæðinu með því að fjölga spennarýmum og stækka þau til að geta seinna spennuhækkað. Þá var unnið að uppsetningu á rafhlöðu í Vík, sem mun bæta afhendingargetu með því að auka toppafl um 1 MW, auk þess sem unnið var að þróun á nýjum orkustýringarhugbúnaði til að geta stýrt beint sveigjanlegum (flex) viðskiptavinum sem heimila beinar skerðingar á dreifingu eftir álagi. Verkefnin eru hluti af langtímaáætlun Rarik um öflugra, öruggara og sveigjanlegra dreifikerfi sem geti mætt vaxandi þörfum samfélags og atvinnulífs.
Í júní lauk Rarik fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins með góðum árangri. Tekið var tilboðum að fjárhæð 10 ma.kr., en heildareftirspurn nam 14,7 ma.kr. Góðar viðtökur við útgáfunni endurspegla traust fjárfesta á Rarik og styrkja langtímafjármögnun félagsins.
Magnús Þór Ásmundsson forstjóri:
„Uppgjörið sýnir skýra og jákvæða þróun í rekstri móðurfélagsins. Tekjur aukast á sama tíma og rekstrarkostnaður án afskrifta lækkar. Afkoma samstæðunnar er þó lakari en á sama tíma í fyrra vegna krefjandi stöðu Orkusölunnar. Rarik samstæðan er engu að síður fjárhagslega mjög sterk, með 60% eiginfjárhlutfall og öflugt sjóðstreymi frá rekstri. Sú staða gerir okkur kleift að halda áfram umfangsmikilli endurnýjun og styrkingu dreifikerfisins. Samhliða leggjum við áherslu á að nýta nýja tækni og fjárfesta í tæknilausnum sem stuðla að skilvirkari rekstri, betri nýtingu kerfisins og auknu afhendingaröryggi. Með þessum fjárfestingum styrkjum við innviði sem styðja við orkuskipti og atvinnuuppbyggingu um land allt.“
Helstu lykiltölur (óendurskoðað, í millj. kr.)
| Rekstur | 1.1–30.6.2026 | 1.1–30.6 2025 |
| Rekstrartekjur | 14.507 | 14.095 |
| EBITDA | 4.590 | 4.834 |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 2.550 | 2.937 |
| Hagnaður eftir skatta | 1.225 | 1.494 |
| Efnahagur | 30.6.2026 | 31.12.2025 |
| Eignir | 113.959 | 107.224 |
| Skuldir | 45.542 | 38.964 |
| Eiginfjárhlutfall | 60.0% | 63,3% |
| Sjóðsstreymi | 1.1–30.6.2026 | 1.1–30.6.2025 |
| Handbært fé frá rekstri | 3.970 | 3.694 |
| Fjárfestingar | 3.435 | 3.514 |
Árshlutareikningur Rarik samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var samþykktur á fundi stjórnar Rarik ohf. þann 25. ágúst 2026. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Ýr Sveinsdóttir (elisabet@rarik.is), framkvæmdastjóri fjármála Rarik.
Viðhengi