Stjórn Íslandshótela hf. staðfesti á fundi sínum í dag, miðvikudaginn 26. ágúst 2026, samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Árshlutareikningur félagsins hefur nú verið birtur.
Helstu lykiltölur fyrstu sex mánaða 2026 miðað við sama tímabil 2025:
Mikil breyting varð á sjóðstreymi félagsins á milli ára. Handbært fé frá rekstri nam 703,5 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við neikvætt sjóðstreymi frá rekstri um 194,7 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og skatta nam 1.464,4 m.kr. samanborið við 796,8 m.kr. árið áður.
Fjármagnsliðir þróuðust jafnframt jákvætt á tímabilinu. Hrein fjármagnsgjöld námu 952,3 m.kr. samanborið við 1.227,2 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Greiddir vextir námu 788,7 m.kr. samanborið við 997,9 m.kr. árið áður.
Þrátt fyrir samdrátt í flugframboði dróst fjöldi erlendra ferðamanna á fyrri helmingi ársins einungis saman um um tæplega 1%. Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum voru jafnframt álíka margar á árshlutanum og á sama tímabili árið áður.
Almennt efnahagsumhverfi einkenndist áfram af háum vöxtum og hækkandi rekstrarkostnaði. Með markvissu kostnaðaraðhaldi tókst félaginu að halda hækkun rekstrarkostnaðar undir almennum verðlagshækkunum.
Sterkt gengi íslensku krónunnar hefur áfram áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar og þar með eftirspurn erlendra ferðamanna. Á sama tíma hafði gengisþróunin jákvæð áhrif á fjármagnsliði félagsins og var gengismunur jákvæður á árshlutanum.
Tvö hótel bætast við rekstur Íslandshótela
Í september hefur Íslandshótel rekstur tveggja nýrra hótela, Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2 og Reykjavík Natura Hotel að Nauthólsvegi 52, samkvæmt 17 ára leigusamningi við Reiti. Samningurinn tekur gildi 1. september 2026 við afhendingu eignanna.
Samhliða breytingunni fær Hilton Reykjavík Nordica nafnið Hilton Reykjavík og mun áfram starfa undir alþjóðlegu Hilton vörumerkinu. Reykjavík Natura Hotel fær nafnið Hótel Reykjavík Askja og verður hluti af Hótel Reykjavík vörumerkinu.
Hótelin tvö eru samtals 26.500 fermetrar og þar eru 471 herbergi. Með viðbót þeirra mun Íslandshótel reka 19 hótel um land allt með samtals um 2.400 herbergjum. Félagið mun jafnframt annast veitingarekstur á báðum hótelum. Rekstur hótelanna verður órofinn við breytinguna og fyrirhugaðar endurbætur verða framkvæmdar í áföngum í samstarfi við Reiti með það að markmiði að auka gæði og aðdráttarafl hótelanna.
Framtíðarhorfur
Horfur næstu mánaða einkennast áfram af nokkurri óvissu. Þróun ferðaþjónustunnar mun meðal annars ráðast af flugframboði til landsins, efnahagsþróun á helstu markaðssvæðum og samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Þrátt fyrir samdrátt í flugframboði hefur fjöldi erlendra ferðamanna og gistinátta haldist nokkuð stöðugur það sem af er ári. Framboð hótelherbergja hefur jafnframt aukist og því má áfram gera ráð fyrir samkeppni um bæði gesti og starfsfólk.
Verðbólga er áfram töluverð og kostnaðarþrýstingur til staðar, meðal annars vegna launa og verðlagshækkana. Vaxtastig er jafnframt hátt og þróun vaxta hefur áfram veruleg áhrif á fjármagnskostnað félagsins. Íslandshótel mun því áfram leggja áherslu á tekjustýringu, kostnaðaraðhald og hagræðingu í rekstri ásamt því að fylgjast náið með þróun eftirspurnar, flugframboðs, gengis, vaxta, verðlags og launakostnaðar.
„Það er margt jákvætt í rekstri félagsins á fyrri hluta ársins. Tekjur aukast á milli ára og sjóðstreymi frá rekstri batnar verulega. Þá hafa fjármagnsliðir þróast í rétta átt og vaxtagreiðslur lækkað töluvert. Á sama tíma hefur okkur tekist að halda vel utan um kostnað þrátt fyrir áframhaldandi verðbólgu og kjarasamningsbundnar launahækkanir. Framundan eru síðan mikilvæg tímamót þegar Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Askja bætast við reksturinn 1. september. Með þeim munum við reka 19 hótel um land allt með samtals um 2.400 herbergjum og styrkja þannig stöðu Íslandshótela enn frekar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela hf.
Árshlutareikningur félagsins er meðfylgjandi og er hann einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.islandshotel.is/fjarfestar.
Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markaði. Meðfylgjandi er staðfestingarbréf frá Deloitte vegna skuldabréfaflokks IH140647.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela hf.
david@islandshotel.is
sími: 862 8089