Reykjavík, 27. ágúst 2026.
Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.
Afkoma á fyrri árshelmingi 2026
Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.
Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2026 var 583 m.kr. en 694 m.kr hagnaður á sama tímabili í fyrra. Eigið fé Sláturfélagsins er 9.762 m.kr. í lok júní.
Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 10.430 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2026, en 10.131 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um tæp 3,0%. Aðrar tekjur voru 92 m.kr. en 88 m.kr. árið áður.
Vöru- og umbúðanotkun var 5.415 m.kr. en 5.249 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 2.332 m.kr. og hækkaði um tæp 2,4%, annar rekstrarkostnaður var 1.745 m.kr. og hækkaði um tæp 14,0% og afskriftir voru 292 m.kr. og hækkuðu um 4,9%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 737 m.kr., en 881 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.029 m.kr. en var 1.159 m.kr. á sama tíma í fyrra.
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 48 m.kr., en voru 17 m.kr., á sama tímabili í fyrra. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 12,1 m.kr. Reiknaður tekjuskattur nam 118 m.kr., en 161 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri tímabilsins var 583 m.kr. en 694 m.kr. á sama tímabili árið áður.
Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.021 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2026, samanborið við 1.157 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2025. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 18.039 m.kr. og eiginfjárhlutfall 54% en 60% árið áður. Veltufjárhlutfall var 2,2 í lok júní árið 2026, en 2,8 árið áður.
Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum á fyrri árshelmingi 2026 fyrir 2.028 m.kr. en 412 m.kr. á sama tímabili árið áður. Fjárfest var í fasteignum fyrir 713 m.kr. og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 1.315 m.kr. Meirihluti fjárfestinga er vegna framkvæmda við nýja kjötvinnslu Reykjagarðs hf. á Hellu.
Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2026 var greiddur 13,70% arður af B-deild stofnsjóðs alls 27,4 m.kr. og reiknaðir 18,7% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 92,0 m.kr. Stjórn Sláturfélags Suðurlands lagði til viðbótartillögu á aðalfundi að greiddur yrði 13,7% arður af A-deild stofnsjóðs, alls kr. 67,4 m.kr, sem var samþykkt.
Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2026 með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda.
Árshlutareikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Sláturfélags suðurlands svf.: www.ss.is
Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu ársins 2026 þann 18. febrúar 2027.
Staða og horfur
Fjárhagsstaða samstæðunnar er traust með 54% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,2. Langtímaskuldir í lok júní 2026 voru 3.042 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 74 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma með lága greiðslubyrði. Skuldsetning samstæðunnar er að aukast samhliða framkvæmdum Reykjagarðs hf. á Hellu. Lausafjárstaða félagsins er góð en handbært fé var í lok júní 3,1 milljarðar kr.
Afkoma Sláturfélagsins lækkar á milli ára um 111 m.kr. Velta samstæðunnar jókst á milli ára um 3,0% eða 299 m.kr.
Nokkur óvissa er framundan sem getur haft neikvæð áhrif á rekstur samstæðunnar á seinni árshelmingi. Má þar nefna aðstæður á erlendum mörkuðum vegna þess óstöðugleika sem þar ríkir.
Sala á kjöti hefur gengið vel á árinu og birgðastaða kindakjöts í upphafi sláturtíðar verður lægri en í fyrra. Áfram verður unnið að því að aðlaga rekstur samstæðunnar að breyttu rekstrarumhverfi, m.a. með því að leggja áherslu á sérstöðu og gæði innlendrar framleiðslu.
Staða lykilvörumerkja félagsins í matvælaiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum. Aukin vélvæðing og öflug vöruþróun hefur styrkt grundvöll félagsins sem öflugs aðila á kjötmarkaði.
Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst upp á undanförnum árum og er að þjónusta bændur með allar helstu rekstrarvörur. Áfram verða nýtt tækifæri til frekari vaxtar. Fækkun afurðastöðva í landinu er jákvæð og bætir nýtingu þeirra sem eftir standa og leiðir þar með til lækkunar á kostnaði.
Fjárhagsdagatal
18. febrúar 2027 Ársuppgjör 2026
19. mars 2027 Aðalfundur vegna ársins 2026
26. ágúst 2027 Árshlutauppgjör jan-jún 2027
17. febrúar 2028 Ársuppgjör 2027
17. mars 2028 Aðalfundur vegna ársins 2027
Frekari upplýsingar veita:
Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Sveinn Rafn Eiðsson, fjármálastjóri í síma 575 6000 – sveinnrafn@ss.is