Rekstrarniðurstaða samstæðu Hafnarfjarðarbæjar, A og B hluta var neikvæð um 1.907 m.kr. á fyrri helmingi ársins 2026 en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 887 m.kr. hagnaði. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.478 m.kr. sem er 2.192 undir áætlun. Veltufé frá rekstri nam 1.180 m.kr. í lok júní sem er 176 m.kr. undir áætlun.
Rekstrarniðurstaða A hluta Hafnarfjarðarbæjar var neikvæð um 2.360 m.kr. fyrstu sex mánuðina en áætlun gerði ráð fyrir 435 m.kr. hagnaði. Rekstur A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæður um 335 m.kr. sem er 2.305 m.kr. undir áætlun. Veltufé frá rekstri í A-hluta nam 58 m.kr. í lok júní sem er 344 m.kr. undir áætlun.
Verri rekstrarniðurstaða er að stærstum hluta vegna frávika í byggingarréttargjöldum, hærri rekstrarkostnaði og hærri verðbólgu en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Heildareignir A- og B-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2026 námu 111,3 ma.kr. og skuldir og skuldbindingar 75,3 ma.kr. Eigið fé var 36,0 ma.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar 32,4%.
Þórður Þórðarson, bæjarstóri:
„Afkoman á fyrri hluta ársins er undir áætlunum. Við höfum hafið markvisst starf til þess að bregðast við þessari stöðu og væntum góðs árangurs af þeim aðgerðum.
Rekstrarumhverfi sveitarfélaga hefur þyngst undanfarin ár. Yfirtaka útgjaldafreka málaflokka hefur reynst krefjandi og rekstur þeirra erfiðari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Má þar nefna mikilvæga þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir en fræðslumálin eru einnig yfir áætlunum. Ljóst er að gildandi kjarasamningar hafa hér áhrif og fram undan eru töluverðar áskoranir. Við munum sýna ábyrgð í rekstri og fjármálastjórn en jafnframt standa vörð um áframhaldandi góða þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar.
Bærinn brást við breyttum og versnandi horfum strax snemmsumars með því að ráðast í stjórnsýslu- og fjármálaúttektir á rekstri bæjarins. Niðurstöður þeirrar vinnu munu liggja fyrir á næstunni og verða mikilvægt innlegg í ákvarðanir um nauðsynlegt aðhald, bætta nýtingu fjármuna og traustan rekstur til framtíðar.
Jafnframt breytti Hafnarfjörður reglum sínum um innheimtu byggingarréttargjalda og gefst húsbyggjendum nú kostur á að dreifa gjöldunum í allt að tvö ár. Var það gert til að bregðast við aðstæðum á byggingamarkaði. Líkt og í flestum sveitarfélögum hafa tekjur bæjarins vegna lóðagjalda dregist saman samhliða minni umsvifum. Aðgerðirnar hafa strax skilað sér í auknum fjölda samninga undanfarnar vikur. Fjármagnsliðir eru þungir við þetta hátt vaxtastig og verðbólgu. Það eiga allir mikið undir því að árangur náist í þeirri baráttu sem allra fyrst.
Við munum mæta þessum áskorunum af festu og tryggja að Hafnarfjörður verði áfram öflugt og eftirsóknarvert bæjarfélag fyrir fólk og fyrirtæki.“
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar, janúar til júní 2026, var lagður fyrir bæjarráð 17. september sl. Árshlutareikningurinn er óendurskoðaður og ókannaður og er aðgengilegur á vef Hafnarfjarðarbæjar, www.hafnarfjordur.is.