Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 28. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 6.7.2026 | 10:26:54 | 200.000 | 188,50 | 37.700.000 | 23.441.260 |
| 6.7.2026 | 14:19:03 | 240.000 | 187,75 | 45.060.000 | 23.681.260 |
| 7.7.2026 | 10:14:23 | 140.000 | 187,00 | 26.180.000 | 23.821.260 |
| 7.7.2026 | 10:24:13 | 100.000 | 187,00 | 18.700.000 | 23.921.260 |
| 7.7.2026 | 14:26:10 | 200.000 | 185,50 | 37.100.000 | 24.121.260 |
| 8.7.2026 | 09:32:03 | 100.000 | 184,00 | 18.400.000 | 24.221.260 |
| 8.7.2026 | 09:36:20 | 100.000 | 184,00 | 18.400.000 | 24.321.260 |
| 8.7.2026 | 14:18:37 | 100.000 | 184,00 | 18.400.000 | 24.421.260 |
| 8.7.2026 | 14:47:45 | 100.000 | 184,00 | 18.400.000 | 24.521.260 |
| 9.7.2026 | 09:55:46 | 200.000 | 184,00 | 36.800.000 | 24.721.260 |
| 9.7.2026 | 14:54:58 | 150.000 | 184,50 | 27.675.000 | 24.871.260 |
| 9.7.2026 | 15:06:35 | 90.000 | 184,50 | 16.605.000 | 24.961.260 |
| 10.7.2026 | 14:27:03 | 200.000 | 185,25 | 37.050.000 | 25.161.260 |
| 1.920.000 | 25.161.260 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 6.7.2026 | 11:47:58 | 5.410 | 14,54 | 78.661 | 3.743.775 |
| 6.7.2026 | 12:06:42 | 800 | 14,54 | 11.632 | 3.744.575 |
| 6.7.2026 | 13:39:08 | 309 | 14,54 | 4.493 | 3.744.884 |
| 8.7.2026 | 10:40:28 | 2.365 | 14,44 | 34.151 | 3.747.249 |
| 8.7.2026 | 10:47:28 | 5.635 | 14,44 | 81.369 | 3.752.884 |
| 9.7.2026 | 15:15:15 | 1.133 | 14,32 | 16.225 | 3.754.017 |
| 9.7.2026 | 15:15:29 | 334 | 14,32 | 4.783 | 3.754.351 |
| 15.986 | 231.314 | 3.754.351 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 28 samtals 26.979.625 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 28 samtals 28.915.611 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,10% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 14.651.011 hluti fyrir 2.815.804.563 kr. og 69.071 heimildarskírteini fyrir 1.008.706 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171