Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 31. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.. Engin sænsk heimildarskírteini (SDR) voru keypt í vikunni á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 27.7.2026 | 14:13:28 | 200.000 | 195,75 | 39.150.000 | 29.510.467 |
| 27.7.2026 | 15:18:02 | 200.000 | 196,75 | 39.350.000 | 29.710.467 |
| 27.7.2026 | 15:24:00 | 200.000 | 196,75 | 39.350.000 | 29.910.467 |
| 28.7.2026 | 14:12:07 | 400.000 | 196,50 | 78.600.000 | 30.310.467 |
| 29.7.2026 | 10:27:13 | 200.000 | 196,00 | 39.200.000 | 30.510.467 |
| 29.7.2026 | 12:58:25 | 110.000 | 196,50 | 21.615.000 | 30.620.467 |
| 29.7.2026 | 14:42:31 | 240.000 | 196,00 | 47.040.000 | 30.860.467 |
| 30.7.2026 | 10:29:02 | 150.000 | 193,00 | 28.950.000 | 31.010.467 |
| 30.7.2026 | 11:14:19 | 150.000 | 193,00 | 28.950.000 | 31.160.467 |
| 30.7.2026 | 14:49:33 | 250.000 | 193,50 | 48.375.000 | 31.410.467 |
| 31.7.2026 | 10:54:30 | 200.000 | 193,00 | 38.600.000 | 31.610.467 |
| 31.7.2026 | 14:00:58 | 200.000 | 192,75 | 38.550.000 | 31.810.467 |
| 31.7.2026 | 14:02:16 | 200.000 | 192,75 | 38.550.000 | 32.010.467 |
| 2.700.000 | 526.280.000 | 32.010.467 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 31 samtals 33.074.845 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 31 samtals 35.774.845 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,59% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 21.500.218 hluti fyrir 4.135.834.324 kr. og 79.098 heimildarskírteini fyrir 1.152.928 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171