Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 30. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 20.7.2026 | 11:19:08 | 150.000 | 191,00 | 28.650.000 | 26.706.260 |
| 20.7.2026 | 14:31:28 | 200.000 | 192,00 | 38.400.000 | 26.906.260 |
| 21.7.2026 | 11:00:25 | 200.000 | 193,00 | 38.600.000 | 27.106.260 |
| 21.7.2026 | 11:57:27 | 200.000 | 193,00 | 38.600.000 | 27.306.260 |
| 21.7.2026 | 14:46:10 | 199.000 | 193,00 | 38.407.000 | 27.505.260 |
| 22.7.2026 | 11:27:02 | 115.207 | 194,50 | 22.407.762 | 27.620.467 |
| 22.7.2026 | 11:30:25 | 200.000 | 194,50 | 38.900.000 | 27.820.467 |
| 22.7.2026 | 11:43:00 | 270.000 | 194,50 | 52.515.000 | 28.090.467 |
| 23.7.2026 | 15:06:41 | 300.000 | 193,50 | 58.050.000 | 28.390.467 |
| 23.7.2026 | 15:14:06 | 300.000 | 193,50 | 58.050.000 | 28.690.467 |
| 24.7.2026 | 13:56:03 | 200.000 | 195,50 | 39.100.000 | 28.890.467 |
| 24.7.2026 | 14:08:38 | 300.000 | 195,50 | 58.650.000 | 29.190.467 |
| 24.7.2026 | 15:21:13 | 120.000 | 195,00 | 23.400.000 | 29.310.467 |
| 2.754.207 | 533.729.762 | 29.310.467 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 20.7.2026 | 13:59:46 | 489 | 14,80 | 7.237 | 3.764.133 |
| 20.7.2026 | 13:59:46 | 245 | 14,80 | 3.626 | 3.764.378 |
| 734 | 10.863 | 3.764.378 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 30 samtals 30.319.904 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 30 samtals 33.074.845 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,4% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 18.800.218 hluti fyrir 3.609.554.325 kr. og 79.098 heimildarskírteini fyrir 1.152.929 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171