REYKJAVÍK (27. ágúst 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tekur þátt í tveimur fjárfestaráðstefnum í Bandaríkjunum í næsta mánuði þar sem Róbert Wessman, stofnandi og starfandi stjórnarformaður, og Dr. Balaji V. Prasad, framkvæmdastjóri stefnumótunar, verða fulltrúar félagsins.
Hægt verður að hlýða á samtalið við greinanda Morgan Stanley í beinu streymi. Upptaka af atburðinum verður einnig aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga eftir að ráðstefnunni lýkur. Hlekk á streymið og upptökuna er að finna á heimasíðu Alvotech á síðunni Viðburðir og kynningar, með öðrum viðburðum í þriðja ársfjórðungi 2026 (Q3).
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com
Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður eru þegar á markaði víðsvegar um heim, við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með krabbamein, sjálfsofnæmis-, augn- og blóðsjúkdóma. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, öðrum Asíuríkjum, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.