Alvotech birtir í dag uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 og fjallar um nýlega áfanga í rekstri félagsins.
Ítarlegri útgáfu á ensku er að finna á vefsíðu félagsins fyrir fjárhagsupplýsingar: https://www.alvotech.com/is/financials undir liðnum 2026 Q2, þar má einnig finna árshlutareikning með skýringum og kynningu fyrir uppgjörsfund með stjórnendum félagsins. Fundurinn verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 20. ágúst. Skráning á fundinn fer fram hér: https://edge.media-server.com/mmc/p/ppckxq33.
Helstu niðurstöður árshlutareikningsins (án einskiptiliða1)
| Milljónir dollara – án einskiptiliða1 | 6M 2026 | 6M 2025 | % breyting | |||
| Vöru og þjónustutekjur | 105,9 | 204,7 | -48,3% | |||
| Leyfistekjur og aðrar tekjur | 105,7 | 101,4 | 4,4% | |||
| Aðrar tekjur | 0,2 | 0,1 | 49,7% | |||
| Heildartekjur | 211,9 | 306,1 | -30,8% | |||
| Framlegð af heildartekjum | 54% | 55% | ||||
| EBITDA-framlegð | 46,9 | 53,7 | -12,7% |
Helstu áfangar á öðrum ársfjórðungi
Ummæli Lisu Graver, forstjóra:
„Fyrstu sex mánuði ársins unnum við ötullega að forgangsverkefnum félagsins, þar á meðal umtalsverðum úrbótum á framleiðsluaðstöðu og gæðakerfum. Þessi vinna gerði okkur kleift í júní sl. að leggja inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT05 og AVT06, auk þess sem samstarfsaðili okkar lagði inn að nýju umsókn fyrir AVT03. Þetta var mikilvægur áfangi á þeirri leið að tryggja markaðsleyfi frá FDA á síðasta fjórðungi ársins 2026. FDA staðfesti einnig að reglubundinni cGMP-úttekt á framleiðsluaðstöðunni í Vatnsmýri væri að fullu lokið og aðstaðan væri flokkuð VAI.
„Við náðum einnig góðum árangri í lyfjaþróun. FDA samþykkti nýlega að taka til umfjöllunar umsókn okkar um markaðsleyfi fyrir AVT16, fyrirhugaða hliðstæðu með útskiptileika við líftæknilyfið Entyvio. Þá staðfesti Lyfjastofnun Evrópu (EMA) að teknar hefðu verið til umsagnar markaðsleyfisumsóknir fyrir AVT16 og AVT80. Við teljum okkur vera í kjörstöðu þegar kemur að markaðssetningu þessara nýju hliðstæðna.
„Úrbæturnar í framleiðslunni höfðu umtalsverð áhrif á afköst á fyrri helmingi ársins og drógu úr vöruframboði okkar. Þetta endurspeglast í tekjum og aðlagaðri EBITDA-framlegð á þessu tímabili. Framleiðslan komst aftur á réttan kjöl í lok annars ársfjórðungs. Við erum að byggja upp birgðastöðu til að geta mætt staðfestri eftirspurn. Það mun leiða til betri afkomu þegar líður á síðari helming ársins. Mikilvægt er að undirstrika að eftirspurn eftir okkar lyfjum er mjög mikil, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.
„Við erum nú með fimm hliðstæður á markaði, sem skila umtalsverðum vörutekjum og mikilvægir áfangar í leyfisveitingum eru fram undan. Öflugur stuðningur frá núverandi og nýjum fjárfestum sem fram kom í nýlegu hlutafjárútboði og aðgengi að nýju lánsfé styrkir enn frekar fjárhagsstöðu félagsins og gerir okkur betur kleift að grípa þau miklu tækifæri sem fram undan eru.“
Afkomuspá fyrir árið 2026
Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 (án einskiptiliða) verði á bilinu 650-700 milljónir dollara og EBITDA-framlegð (án einskiptiliða) á bilinu 180-220 milljónir dollara.
Boð á kynningu á árshlutauppgjörinu
Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið á fundi sem sendur verður út í beinu streymi og hefst kl. 12 fimmtudaginn 20. ágúst nk.
Til þess að hlusta á beint streymi af fundinum:
https://edge.media-server.com/mmc/p/2qwpypd4
Til þess að hlusta eða leggja fram spurningu úr síma (hverjum þátttakanda er úthlutað PIN):
https://register-conf.media-server.com/register/BI179b5ef63d8c4924a2076cb25acf4b15
Kynningarglærur fyrir fundinn og önnur gögn er að finna undir liðnum 2026 Q2 á slóðinni:
https://alvotech.com/is/financials
Nánari upplýsingar veita:
Fyrir fjölmiðla – alvotech.media@alvotech.com
Benedikt Stefansson
Sarah MacLeod
Fyrir fjárfesta - alvotech.ir@alvotech.com
Dr. Balaji V Prasad
Benedikt Stefansson
Fjárhagsdagatal:
Uppgjör eftir hvern ársfjórðung er birt eins og sjá má í töflunni, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Uppgjörsfundur fer fram næsta dag. Dagatalið er birt með fyrirvara um mögulegar breytingar.
| Ársfjórðungur | Birting uppgjörs | Uppgjörsfundur |
| 3F 2026 | 11. nóvember 2026 | 12. nóvember 2026 |
| 4F 2026 | 10. mars 2027 | 11. mars 2027 |
Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech hefur sett fimm hliðstæður á alþjóðlegan markað. Þá vinnur félagið meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með krabbamein, sjálfsofnæmis-, augn- og blóðsjúkdóma. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech https://alvotech.is. Þá má fylgjast með Alvotech á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram, og YouTube.
1 Tölurnar sýna tekjur, hagnað eða tap tímabilsins að teknu tilliti til einskiptis- og óreglulegra liða. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni ‚Reported to Adjusted Reconcilliation‘ í ítarlegri útgáfu tilkynningarinnar á ensku, sem nálgast má á vefsíðu Alvotech https://alvotech.com/is/financials undir liðnum 2026 Q2.
Viðhengi
