Alma íbúðafélag hf. („ALMA“) hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki AL210628. Seld voru skuldabréf að nafnverði kr. 1.500.000.000 á pari.
Um er að ræða 21 mánaða fljótandi vaxtagreiðslubréf á 1M REIBOR að viðbættu 1,24% vaxtaálagi með lokagjalddaga 21. júní 2028. Skuldabréfaflokkurinn er gefinn út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi.
Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 21. september nk. og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Nasdaq Iceland mun tilkynna töku til viðskipta með a.m.k. eins dags fyrirvara.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku þeirra til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: Alma íbúðafélag | Skuldabréfafjármögnun
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is
Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., ingolfur@al.is