Alma íbúðafélag hf. („ALMA“) efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 13. ágúst næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum AL040629 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi.
Skuldabréfaflokkurinn AL040629 er með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga og ber fljótandi vexti tengdum 1 mánaða REIBOR-vöxtum að viðbættu 1,24% vaxtaálagi. Lokagjalddagi flokksins er 4. júní 2029. Skuldabréfin eru gefin út í 20 m. kr. nafnverðseiningum og er heildarstærð flokksins nú 1.200 m. kr.
Útboðið verður með föstum kjörum eða á hreinu verði 100,00 og eru fjárfestar beðnir um að skila inn magntilboði.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða föstudaginn 14. ágúst 2026. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 20. ágúst 2026 og í kjölfarið verður sótt um töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta.
Íslandsbanki hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð, skal skilað til Íslandsbanka hf. fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 13. ágúst 2026 á netfangið vbm@islandsbanki.is.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsinguna, viðauka við grunnlýsinguna og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu þeirra má nálgast á vefsíðu félagsins. Tilkynningar sem ALMA hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins https://www.al.is/company/investors/.
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.
Ingólfur Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., ingolfur@al.is.