Alma íbúðafélag hf. („ALMA) hefur lokið stækkun á skuldbréfaflokknum AL040629 með sölu á skuldabréfum fyrir 2.320.000.000 kr. á pari.
Um er að ræða 3 ára fljótandi vaxtagreiðslubréf á 1 mánaða REIBOR-vöxtum að viðbættu 1,24% álagi. Skuldabréfaflokkurinn er gefinn út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi. Skuldabréfin eru gefin út í 20.000.000 kr. nafnverðseiningum og verður heildarstærð eftir útgáfu 3.520.000.000 kr.
Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudaginn 20. ágúst næstkomandi og í kjölfarið verður sótt um að stækkunin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Grunnlýsinguna, viðauka við grunnlýsinguna og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu þeirra má nálgast á vefsíðu félagsins: Alma íbúðafélag | Skuldabréfafjármögnun
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.
Ingólfur Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., ingolfur@al.is.