Alma íbúðafélag hf. („ALMA“) hefur lokið stækkun á skuldbréfaflokknum AL210628 með sölu á skuldabréfum fyrir 1.160.000.000 kr. á pari.
Um er að ræða fljótandi vaxtagreiðslubréf á 1M REIBOR að viðbættu 1,24% vaxtaálagi og lokagjalddaga 21. júní 2028. Skuldabréfin eru gefin út í 20.000.000 kr. nafnverðseiningum og verður heildarstærð eftir útgáfu 2.660.000.000 kr. Skuldabréfaflokkurinn er gefinn út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi.
Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 15. október næstkomandi og í kjölfarið verður sótt um að stækkunin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Grunnlýsinguna, endanlega skilmála og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu þeirra má nálgast á vefsíðu félagsins: Alma íbúðafélag | Skuldabréfafjármögnun
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.
Ingólfur Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., ingolfur@al.is.