Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu ACF 15 1 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 2. september næstkomandi.
Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu ACF 15 1 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 2. september næstkomandi. Sjóðurinn mun því miðvikudaginn 2. september 2026 greiða inn á höfuðstól bréfsins, til viðbótar við hefðbundna vaxta- og afborgunargreiðslu, 600.000.000,- króna ásamt 1,5% uppgreiðslugjaldi. Greiðslan er tilkomin vegna vaxta, afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf., sem rekstraraðili útgefanda.