Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 15,5% á öðrum ársfjórðungi 2026 og 14,6% á fyrri helmingi ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 30. júlí kl. 8:30.
Lykiltölur á öðrum ársfjórðungi 2026
Lykiltölur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2026
* Hagnaður / arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
„Afkoma annars ársfjórðungs var góð og náðum við öllum okkar fjárhagslegu markmiðum, þar með talið markmiði um samsetningu eiginfjár. Arion samstæðan veitir viðskiptavinum afar fjölbreytta fjármála- og tryggingaþjónustu og gekk kjarnastarfsemin okkar vel á ársfjórðungnum. Eins og síðustu ársfjórðunga var vöxtur í innlánum sem studdi við útlánavöxt, sérstaklega til fyrirtækja. Einnig var áfram mjög góður gangur í tryggingastarfsemi Varðar sem og sjóðastarfsemi Stefnis. Eigin- og lausafjárstaða er sem fyrr góð og styrkir okkur í áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn.
Í vor opnuðu Arion banki og Vörður nýtt sameiginlegt útibú í Reykjanesbæ og er það fyrsta nýja útibúið um árabil sem Arion banki opnar. Vörður á sér hins vegar langa sögu í Reykjanesbæ, enda verið með útibú í þessu öfluga sveitarfélagi síðan 1999. Opnun útibúsins er mikilvægt skref í að auka þjónustu okkar við íbúa Reykjaness og er allt starfsfólk útibúsins búsett á svæðinu og þekkir því vel til samfélagsins.
Snemma á síðasta ári kynntum við til sögunnar nýtt og öflugt fríðindakerfi, Arion fríðindi, sem miðar að því að hámarka þann ábata sem viðskiptavinir Arion geta haft af því að nýta sér fjölbreytta þjónustu okkar. Á öðrum ársfjórðungi kynntum við svo til leiks viðbót við fríðindakerfið, Arion framtíð, sem er sérstaklega hugsuð fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 24 ára. Með þessu viljum við styðja við unga fólkið þegar það tekur fyrstu skref sín á vinnumarkaði og þarf að huga að tryggingum, framtíðarsparnaði og fyrstu íbúðakaupunum.
Arion appið var valið besta bankaappið á Íslandi af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu – tíunda árið í röð. Í Arion appinu má sinna öllum daglegum bankaviðskiptum, stunda hlutabréfaviðskipti og kaup í sjóðum Stefnis og halda utan um lífeyrismálin og tryggingar frá Verði. Sem fyrr munum við nýta þessa viðurkenningu sem hvatningu til að gera gott app enn betra með það að markmiði að uppfylla þarfir viðskiptavina okkar, einstaklinga og fyrirtækja, þegar kemur að fjármálum og tryggingum.
Blikastaðalandið í Mosfellsbæ er komið í söluferli sem er aðeins opið fjárfestum sem hafa til að bera reynslu af framkvæmd sambærilegra verkefna og búa yfir fjárhagslegum styrk til að halda áfram uppbyggingu landsins. Verði söluferlið árangursríkt þá verður það hlutverk nýrra eigenda, í samstarfi við Mosfellsbæ, að tryggja vandaða uppbyggingu í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hefur verið í nýju skipulagi svæðisins. Við mótun skipulagsins höfum við lagt áherslu á samspil byggðar og náttúru, góðar samgöngur og mannvænt umhverfi þar sem gott verður að búa.“
Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 30. júlí kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 30. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, samskiptasvid@arionbanki.is, s. 856 7108.
Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik (MAR). Upplýsingarnar voru sendar til birtingar í gegnum ofangreinda tengiliði þann 2026-07-29 15:30 GMT.